Forsíða
Frá stjórn
Félagatal
Myndir
Gamlar myndir
Örnefnaskrá
Ferðaþjónusta
24.04.2012
Aðalfundur Bjargtanga 2010
Aðalfundur félagsins árið 2012 er boðaður laugardaginn 12. maí kl 14:00 í sal á 2. hæð í Brautarholti 4a Reykjavík. Fundi lýkur kl. 16.
Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum félagsins: Á fundinn mætir fulltrúi Baark arkitektastofu (Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur, Þóhildur Þórhallsdóttir garðyrkjufræðingur og landslagsarkitekt og Borghildur S. Sturludóttir arkitekt) sem falið hefur verið af Vesturbyggð til gera deiliskipulag fyrir kjálkann vestan Kleifarheiðar.
Lögin gera ráð fyrir, að aðalmenn í stjórn séu kosnir til tveggja ára í senn og varamenn til eins árs. Formaður er kosinn sér til eins árs.
Úr stjórn eiga að ganga:
  • Gísli Már Gíslason formaður (Heimabæ kosinn 2011) og aðalmennirnir sem kosnir voru 2010:
  • Hrafnkell Þórðarson (Húsum)
  • Valur Helgason (Heimabæ) og varamennirnir
  • Ragna Þórðardóttir varaformaður (Húsum)
  • Logi Halldórsson (Heimabæ)
  • Erlendur Kristjánsson (Miðbæ)

Hvatt er til að félagsmenn bjóði sig fram til stjórnarstarfa.
Áfram sitja í stjórn (kosnir 2011): Kristinn Guðmundsson (Húsum) og Solveig Erlendsdóttir (Miðbæ).

Stjórn Bjargtanga.


28.02.2012
Um bann við svartfuglsveiðum og eggjatöku
Nýverið hafa komið upp hugmyndir um algert bann við veiðum á svartfugli og jafnframt bann á eggjatöku í björgum í fimm ár.
Stjórn Bjargtanga var gefinn kostur á að gefa álit sitt á frumvarpsdrögunum. Stjórnin gerði það og mótmælti þeim hugmyndum um friðum sem fram koma í frumvarpinu og jafnframt þeim forsendum sem gefnar eru til rökstuðnings þessari víðtæku friðun. Hér að neðan má lesa ályktun stjórnar og bréf til umhverfisráðherra.
Bréf til Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra
Umsögn stjórnar Bjargtanga um frumvarp til breytinga á lögum um verndun og friðun fugla


11.09.2011
Um vegamál á Hvallátrum
Á fundi Ásthildar Sturludóttur sveitastjóra Vesturbyggðar og innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar í fyrradag, var vegur ofan byggðar á Látrum, þ.e. vegur sem liggur norðan við Látravatn og ofan við brún Grófanna suður fyrir Helguþúfu, settur á vegaáætlun. Það þýðir að farið verður í þessa vegagerð innan tíðar, eða að minnsta kosti að líkur á því eru miklar. Það ætti að minnka ónæðið af umferð í framtíðinni.
Í vor voru bílastæði stækkuð á Bjargtöngum og Brunnum, lítil skilti sett við nokkrar þjóðminjar á Brunnum og norður á Nesi. Fleiri skilti bíða þess að vera sett upp. Strengur var settur milli vegar og verbúða á Brunnum, til að varna því að fólk tjaldi í búðunum og noti þess í stað tjaldstæðið. Sigurþór Þórisson stækkaði bílastæðin og Kristinn Guðmundsson, með hjálp annarra setti upp skiltin og strenginn.


01.08.2010
Fundargerð aðalfundar 2010
Aðalfundur Bjargtanga var haldinn þann 17. maí sl.
Fundargerð aðalfundarins má finna hér.


01.08.2009
Um pítsusölu á Bjargtöngum
Á aðalfundi Bjargtanga 21. maí sl. var samþykkt eftirfarandi ályktun vegna fréttar um fyrirhugaða veitingasölu í Bjargtangavita á vegum Listahátiðar:

Aðalfundur Bjargtanga, félags landeigenda á Hvallátrum, haldinn 21. maí 2009 samþykkir
eftirfarandi ályktun og felur stjórn félagsins að koma henni á framfæri við bæjarstjórn Vesturbyggðar:

Mótmælt er að heimiluð hefur verið veitingasala á Bjargtöngum án leyfis og nokkurs samráðs
við landeigendur.Það er grundvallaratriði að áður en heimiluð er hvers konar starfsemi sé
haft samráð og leitað leyfis þeirra sem landið eiga.


Í framhaldinu sendi Gísli Már Gíslason, formaður félagsins, bréf til Vesturbyggðar og Listahátíðar sem innihéldu ályktun aðalfundarins. Svar barst frá Vesturbyggð og var veitingasölunni hætt og kamrar fjarlægðir í framhaldinu. Bréf Vesturbyggðar má lesa hér.

01.07.2009
Fundargerð aðalfundar 2009
Aðalfundur Bjargtanga var haldinn þann 21. maí sl.
Fundargerð aðalfundarins má finna hér.


20.05.2008
Fundargerð aðalfundar 2008
Aðalfundur Bjargtanga var haldinn þann 17. maí sl.
Fundargerð aðalfundarins má finna hér.


23.10.2007
Verkaskipting stjórnar
Stjórn Bjargtanga var kjörin á aðalfundi 5. maí 2007.
   
Gísli Már GíslasonHeimabæ
Marías SveinssonHeimabæ
Kristinn GuðmundssonHúsabæ
Hrafnkell ÞórðarsonHúsabæ
Hafliði ÁrnasonMiðbæ
Sólveig ErlendsdóttirMiðbæ
Varamenn:
Ragna ÞórðardóttirHúsabæ
Ingólfur HelgasonHeimabæ
Erlendur KristjánssonMiðbæ
 
Stjórnin hefu skipt með sér verkum:
Gísli er formaður, Ragna varaformaður, Sólveig gjaldkeri og Hrafnkell ritari stjórnar.

9.10.2007
Fréttir af vegamálum og landbroti
Gísli Már Gíslason hefur verið í sambandi við Magnús V. Jóhannsson umdæmisstjóra Vegagerðar ríkisins í Borgarnesi
meira...


2.10.2007
Fundargerð aðalfundar 2007
Aðalfundur Bjargtanga var haldinn þann 5. maí sl.
Fundargerð aðalfundarins má finna hér.


22.4.2007
Aðalfundur Bjargtanga 2007
Aðalfundur félagsins árið 2007 er boðaður laugardaginn 5. maí í húsakynnum Fjöltækniskóla Íslands í Sjómannaskólanum við Háteigsveg og hefst kl.: 14:00.
meira...


11.6.2006
Vígsla minnisvarðans flutt til 2. júlí 2006
Minnisvarði um sóknarbörn Breiðavíkurkirkju afhjúpaður á grunni gömlu sóknarkirkjunnar
Sagt var frá því á aðalfundi félagsins 6. maí sl. að af átthagamót Látramanna 1990 varð tekjuafgangur, sem hefur verið ávaxtaður í sjóði. Vörslumenn sjóðsins hafa nú látið gera minnisvarða sem setja á upp á grunni gömlu sóknarkirkju Látramanna í Breiðavík. Sú breyting hefur orðið, að dagsetningin verður 2. júlí. Messað verður í Breiðavíkurkirkju þann dag klukkan 14:00. Eftir messu verður farið í kirkjugarðinn og steinninn afhjúpaður við hátíðlega athöfn. Gestum gefst kostur á á hittast og drekka saman kaffi í veitingasal gistiheimilisins í Breiðavík eftir afhjúpunina.


22.5.2006
Fundargerð aðalfundar 2006
Aðalfundur Bjargtanga var haldinn þann 6. maí sl.
Fundargerð aðalfundarins má finna hér.


4.5.2006
Skýrsla stjórnar 2006
Skýrsla stjórnar Bjargtanga fyrir fyrsta starfsárið er tilbúin. Stjórnin gerir grein fyrir henni á aðalfundinum laugardaginn 6. maí.
Hér má lesa skýrsluna.


12.4.2006
Aðalfundur Bjargtanga 2006
Aðalfundur félagsins árið 2006 er boðaður laugardaginn 6. maí í húsakynnum Fjöltækniskóla Íslands í Sjómannaskólanum við Háteigsveg og hefst kl.: 14:00.
meira...


3.4.2006
Vesturbyggð vill 2,5 milljóna kamar á Bjargtanga
Vesturbyggð sótti um þarseinustu áramót um styrk til Ferðamálaráðs til byggingar salernisaðstöðu. Það vakti athygli þeirra sem stóðu í stofnun átthagafélagsins Bjargtanga að umsóknin fékk jákvæða afgreiðslu, m.a. vegna þess að í henni er því haldið fram að umsóknin sé gerð í samvinnu við landeigendur. Undirbúningshópur - og síðar stjórn Bjargtanga hefur staðið í samskiptum við Vesturbyggð og Ferðamálaráð til þess að afla upplýsinga, leiðrétta misskilning og árétta stöðu og rétt félagsins í þessu máli.
meira...


16.4.2005
Félag land- og sumarhúsaeigenda á Hvallátrum stofnað
84 á stofnfundi Bjargtanga
Landeigendafélagið Bjargtangar hefur nú loks verið stofnað. Eftir nokkurra mánaða undirbúningsvinnu og tillögugerð að lögum félagsins, var stofnfundur haldinn í dag. Til fundarins höfðu verið boðaðir um 140 manns sem undirbúningshópurinn taldi að teldust til Látramanna. Ekki sáu sér allir fært að mæta, en 84 mættu á fundinn, rituðu nafn sitt í gestabók og greiddu fyrir kaffisopann sem til reiðu var á fundinum. Þessir 84 teljast því stofnfélagar Bjargtanga.
Eftir skarpar umræður, voru lög félagsins samþykkt, og stjórn þess kosin.


Free Counter