Aðalfundur haldinn 21. maí 2009.
Fundur var settur klukkan 14:00 í Fjöltækniskólanum (Stýrimannaskólanum).
Gísli Már Gíslason formaður setti fundinn og bauð fólk velkomið.
Dagskrá fundarins var skv. lögum félagsins og auglýstri dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
- Lagabreytingar
- Kjör formanns
- Kjör meðstjórnenda
- Kjör skoðunarmanns reikninga
- Ákvörðun um árgjöld félagsins
- Önnur mál
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
Formaður tilnefndi Þórð Kristjánsson sem fundarstjóra og Guðlaugu Ragnarsdóttur sem ritara sem var samþykkt.
2. Skýrsla stjórnar
Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2008 – 2009 var flutt af Gísla Má Gíslasyni formanni félagsins.
3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
Sólveig Elendsdóttir lagði fram endurskoðaða reikninga félagsins. Þeir voru samþykktir án athugasemda.
Í máli gjaldkera kom fram að fáir hefðu greitt árgjaldið. Af 136 einstaklingum sem voru minntir á árgjaldið með tölvupósti voru einungis 26 búnir að greiða. Meðlimum virðist fara fækkandi. Sóveigu og Gísla Má falið að skoða málið.
4. Lagabreytingar
Engar tillögur lágu fyrir um lagabreytingar.
5. Kjör formanns
Gísli Már Gíslason (Heimabæ) var endurkjörinn samhljóða til eins árs.
6. Kjör meðstjórnenda
Kristinn Guðmundsson (Húsum) og Hafliði Árnason (Miðbæ) voru kjörnir til tveggja ára 2006. Þeir gáfu kost á sér áfram og voru endurkjörnir samhljóða.
Í varastjórn voru kjörin á seinasta aðalfundi til eins árs: Ragna Þórðardóttir (Húsum), Valur Helgason (Heimabæ) og Erlendur Kristjánsson. Þau gáfu kost á sér áfram og voru endurkjörin samhljóða.
7. Kjör skoðunarmanns reikninga
Sigurður Valtýsson er skoðunarmaður reikninga. Hann gaf kost á sér áfram og var kosinn samhljóða.
8. Ákvörðun um árgjald
Árgjald félagsins var 1000 kr. og var ákveðið að það yrði óbreytt.
9. Önnur mál
Þórður Kristjánsson hefur oftar en einu sinni séð útlendinga snúa við hjá réttinni þar sem beygt er út á Bjarg. Líkt og margir halda að þar endi leiðin. Taldi hann mikilvægt að sett yrði upp skilti þar sem benti áfram að Látrabjargi. Hann beindi þessu til stjórnar félagsins og bað um að hún stæði fyrir því að skiltið yrði sett upp.
Gísli upplýsti að pizzusala yrði í vélahúsinu við vitann á föstu-, laugar- og sunnudögum í sumar á vegum Listahátíðar. Miklar umræður urðu um þetta mál þar sem sveitafélagið hefur ekki haft samráð við landeigendur. Fundurinn samþykkti einróma ályktun sem send verður til sveitafélagsins.
Ályktunin hljóðar svo:
Aðalfundur Bjargtanga, félags landeigenda á Hvallátrum, haldinn 21. maí 2009 samþykkir
eftirfarandi ályktun og felur stjórn félagsins að koma henni á framfæri við bæjarstjórn Vesturbyggðar:
Mótmælt er að heimiluð hefur verið veitingasala á Bjargtöngum án leyfis og nokkurs samráðs
við landeigendur.Það er grundvallaratriði að áður en heimiluð er hvers konar starfsemi sé
haft samráð og leitað leyfis þeirra sem landið eiga.