Aðalfundur haldinn 17. maí 2010.
Fundur var settur klukkan 17:00 í Fjöltækniskólanum (Stýrimannaskólanum).
Gísli Már Gíslason formaður setti fundinn og bauð fólk velkomið.
Dagskrá fundarins var skv. lögum félagsins og auglýstri dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
- Lagabreytingar
- Kjör formanns
- Kjör meðstjórnenda
- Kjör skoðunarmanns reikninga
- Ákvörðun um árgjöld félagsins
- Önnur mál
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
Formaður tilnefndi Sigurð Valtýsson sem fundarstjóra og Guðlaugu Ragnarsdóttur sem ritara sem var samþykkt.
2. Skýrsla stjórnar starfsárið 2009-2010
Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2009 – 2010 var flutt af Gísla Má Gíslasyni formanni félagsins.
3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
Sólveig Elendsdóttir lagði fram endurskoðaða reikninga félagsins. Þeir voru samþykktir án athugasemda.
Í máli gjaldkera kom fram að fáir hefðu greitt árgjaldið. Af 136 einstaklingum sem voru minntir á árgjaldið með tölvupósti voru einungis 26 búnir að greiða. Meðlimum virðist fara fækkandi. Sóveigu og Gísla Má falið að skoða málið.
4. Lagabreytingar
Engar tillögur lágu fyrir um lagabreytingar.
5. Kjör formanns
Gísli Már Gíslason (Heimabæ) var endurkjörinn samhljóða til eins árs.
6. Kjör meðstjórnenda
Hrafnkell Þórðarson (Húsum) og Marías Sveinsson (Heimabæ) voru kosnir árið 2008 og gaf Hrafnkell kost á sér áfram en Marías óskað eftir að draga sig í hlé. Stungið var upp á Valur Helgason (Heimabæ) í hans stað. Hrafnkell og Valur voru kosnir samhljóða.
Í varastjórn voru kjörin á seinasta aðalfundi til eins árs: Ragna Þórðardóttir (Húsum), Logi Halldórsson (Heimabæ) og Erlendur Kristjánsson (Miðbæ). Þau gáfu kost á sér áfram og voru endurkjörin samhljóða.
7. Kjör skoðunarmanns reikninga
Sigurður Valtýsson er skoðunarmaður reikninga. Hann gaf kost á sér áfram og var kosinn samhljóða.
8. Ákvörðun um árgjald
Árgjald félagsins var 1000 kr. og var ákveðið að það yrði óbreytt.
9. Önnur mál
Talsverðar umræður urðu um samskipti við Vesturbyggð og ferðaþjónustu á Látrum og Látrabjargi. Marías Sveinsson óskað skýringa á starfi Umfars og þjónustu á tjaldstæði á Brunnum. Kom fram í svari formanns að starfsmaður Umfars, Sigríður Guðmundsdóttir frá Kvíindisdal, muni bjóða ferðamönnum leiðsögn um Bjargið óski þeir þess og jafnfram sjá um tjaldstæðið, en Vestubyggð greiðir Umfari lítilsháttar fyrir að halda því hreinu og tilkynna ef eitthvað kemur uppá. Engin gjaldtaka verður á Brunnum.
| Sigurður Ragnarsson (sign.) | Guðlaug Ragnarsdóttir (sign.) |
| fundarstjóri | fundarritari |