Forsíða
Frá stjórn
Félagatal
Myndir
Gamlar myndir
Örnefnaskrá
Ferðaþjónusta
Bjargtangar
Félag land- og sumarhúsaeigenda á Hvallátrum við Látrabjarg

Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2008 - 2009.

Á aðalfundi Bjargtanga 17. maí 2008 voru eftirtaldir kosnir í stjórn. Gísli Már Gíslason formaður (Heimabæ) til eins árs, og aðrir stjórnarmenn; Hrafnkell Þórðarson (Húsum) og Marías Sveinsson. Í varastjórn til eins árs voru kjörin Ragna Þórðardóttir (Húsum), Ingólfur Helgason (Heimabæ) og Erlendur Kristjánsson.
Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar, sem haldinn var 30. september skipti stjórnin með sér verkum. Ragna tók að sér varaformennsku, Sólveig varð gjaldkeri og Hrafnkell ritari. Allir stjórnarmenn voru boðaðir á stjórnarfundi félagsins.


Haldnir voru 2 stjórnarfundir, sá fyrsti 30. september 2008 og sá seinni 2. maí 2009. Auk þess var fundað með eftirtöldum aðilum:
Niðurstaðan úr þessum viðræðum eru:
  1. Rykbinda á veginn í gegnum byggðina í sumar
  2. Setja á upp skilti sem sýnir 30 km hámarkshraða um byggðina og merki um gangandi vegfarendur
  3. Vegagerðin segist ekki hafa fé til að flytja veginn út fyrir byggð
  4. hafist var handa í vetur við byggingu sjóvarnargarðs á Brunnum og er honum að mestu lokið
  5. Vesturbyggð vill ræða við félagið um hreinlætisaðstöðu á Bjargtöngum yfir sumarmánuðina.

Skráðir félagar eru 136 sem er óbreytt félagatala frá fyrra ári.

Hlutverk Bjargtanga er orðað svo í lögum félagsins:

„Tilgangur félagsins er að gæta sameiginlegra hagsmuna og réttinda félagsmanna
varðandi eignir á Hvallátrum, og marka stefnu um vernd og vörslu lands, náttúru, minja og nytja
á Hvallátrum og Látrabjargi.“


Nauðsynlegt er að árétta, að stjórn félagsins fer ekki með umboð fyrir félagsmenn, heldur er aðeins vettvangur, þar sem afstaða þeirra til málefna getur þróast við skoðanaskipti og þar sem upplýsingar um viðhorf þorra þeirra getur verið að finna. Ákvarðanir á fundum félagsins eru ekki bindandi fyrir félaga og landeigendur heldur aðeins fyrir stjórn félagsins.

Verkefni stjórnar beindist að eftirfarandi, sem að stærstum hluta hafa verið í höndum Gísla Más Gíslasonar formanns.

A: Sérstök og bein hagsmunamál félagsmanna:
  1. Viðræður við vegagerð um lagningu vegar að Bjargtöngum sunnan við byggðina á Látrum.
  2. Urriði settur í Látravatn.
  3. Viðhalda heimasíðu og skrá tölvuföng félagsmanna.

B: Umgengni og umhverfi á Hvallátrum:
  1. Hreinsað til á tjaldstæðinu á Brunnum
  2. Mörkuð stefnu um friðlýsingu á Látrabjargi
  3. Skilti og umgengni
  4. Friðlýstar minjar
  5. Utanvegaakstur og lausaganga sauðfjár

C: Utanaðkomandi erindi.
  1. Sjávarágangur á Brunnum.


Hér verður í stuttu máli gerð grein fyrir helstu liðum í þeirri röð, sem þeir hafa verið tilgreindir.

A: Sérstök og bein hagsmunamál félagsmanna:
  1. Lagning vegar framhjá byggðinni á Hvallátrum fyrir ofan Höfða, Hnjúka og suður fyrir Helguþúfu niður í Fit.
    Gísli Már Gíslason ræddi ítrekað við Hrein Haraldsson vegamálastjóra og skrifaðist á við hann og Magnús V. Jóhannsson umdæmisstjóra Vegagerðarinnar í Borgarnesi um að leggja veg ofan og sunnan við byggðina á Látrum. M.a. skýrði formaður frá því að Sigurþór Þórisson væri með tæki og tól á Látrum og treysti sér til að gera veginn fyrir 18,5 mkr. Vegamálastjóri skýrði frá því að hann hefði skilning á málinu, en áætlaður kostnaður væri 51 mkr, og slík fé væri ekki handbært til framkvæmdanna. Umdæmisstjóri tók undir þessi sjónarmið og skýrði frá því að vegagerðin væri útboðsskyld og því væri ekki hægt að semja við einstaklinga um framkvæmdina án undangengis útboðs.

  2. Urriði var settur í Látravatn sumarið 2006.
    Urriðinn í Látravatni var enn undir veiðanlegri stærð og nokkur afgangur var af fjárhæðinni sem safnaðist fyrir seiðum. Nú væri rétt í sumar að athuga stærðina og urriðanum og hvernig honum vegnar.

  3. Viðhald heimasíðu.
    Þórður Kristjánsson sá um heimasíðu félagsins. Slóðin er: www.bjargtangar.net



B: Umhverfi og umgengni á Hvallátrum:
  1. Tiltekt á Brunnum
    Eftir að skilti var sett upp á hreinlætisaðstöðuna á Brunnum, þar sem fólk er beðið um að ganga vel um hefur umgengni stórbatnað. Ferðafólk hefur ekki verið að flytja grót úr hleðslum eða skilja eftir sig drast. Því hefur verið hægt að halda Brunnum hreinum án þess að fara sérstakar hreinsunarferðir. Beðið var eftir því að festingar fyrir skilti á Bjargtöngum kæmi úr smiðju, svo hægt væri að setja upp skilti um umgengni á Bjargtöngum.

  2. Mörkun stefnu um friðlýsingu á Látrabjargi.
    Skipulag fyrir Vesturbyggð hefur verið staðfest og fellur Látrabjarg undir svokallaða hverfisvernd. Hér er ekki um að ræða friðlýsingu samkvæmt náttúruverndarlögum, sem er á valdsviði umhverfisráðherra, en Látrabjarg er á Náttúruminjaskrá og sem væntanlegur þjóðgarður á náttúruverndaráætlun 2004 til 2008 sem Alþingi samþykkti 2004. Á þetta reyndar við allt svæðið vestan Kleifarheiðar. Ekki eru dæmi þess að friðlýsing hafi verið gerð í andstöðu við landeigendur.

  3. Friðlýstar minjar
    Nokkrar friðlýstar fornminjar er að finna í landi Hvallátra og hafa sumar þeirra verið merktar með litlum skiltum á sverum hælum, flest merkin eru snjáð eða máð, sums staðar eru hælar brotnir, ljóst er, að þessi merki eru vanrækt.

  4. Utanvegaakstur og lausaganga sauðfjár
    Borið hefur á utanvegaakstri í Kárnafit vegna þess að ofaníburð vantar í veginn og hann er orðinn að þvottabretti. Málið hefur verið rætt við Eið Thoroddsen á Patreksfirði og lofaði hann úrbótum.
    Talsvert er um fé á Látrum yfri veturinn og fram á útmánuði og fundust nokkur kindahræ eftir veturinn út á Látrum. Formaður ræddi við Keran Ólafsson í Breiðuvík um betri umgengni.


C: Utanaðkomandi erindi.
  1. Sjávarágangur á Brunnum
    Sigurþór Þórisson á Hvalskeri tók að sér að byggja sjóvarnargarð á Brunnum og hófust framkvæmdir í vetur. Grjótnám er í Látrahálsi neðan við beygjuna og var hægt að flytja efni í garðinn þegar frost var í jörðu. Nú er garðinum nær lokið og hefur framkvæmdin tekist vel.
Landbrot á Brunnum, myndir frá 2007
Landbrot á Brunnum
Landbrot á Brunnum

Varnargarðurinn
Varnargarðurinn
Varnargarðurinn