Forsíða
Frá stjórn
Félagatal
Myndir
Gamlar myndir
Örnefnaskrá
Ferðaþjónusta
Bjargtangar
Félag land- og sumarhúsaeigenda á Hvallátrum við Látrabjarg

Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2009 - 2010.


Á aðalfundi Bjargtanga 21. maí 2009 voru eftirtaldir kosnir í stjórn. Gísli Már Gíslason formaður (Heimabæ) til eins árs, og aðrir stjórnarmenn; Kristinn Guðmundsson (Húsum), Hafliði Árnason (Miðbæ) og Sólveig Erlendsdóttir voru kjörnir til tveggja ára. Í varastjórn til eins árs voru kjörin Ragna Þórðardóttir (Húsum), Valur Helgason (Heimabæ) og Erlendur Kristjánsson (Miðbæ). Fyrir voru í stjórn kosnir 2008: Hrafnkell Þórðarson (Húsum) og Marías Sveinsson (Heimabæ).
Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar, sem haldinn var 5. nóvember 2009 skipti stjórnin með sér verkum. Ragna tók að sér varaformennsku, Sólveig varð gjaldkeri og Hrafnkell ritari. Allir stjórnarmenn voru boðaðir á stjórnarfundi félagsins. Sigurður Valtýsson er skoðunarmaður reikninga.

Haldnir voru 2 stjórnarfundir, sá fyrsti 5. nóvember 2009 og sá seinni 8. mars. Auk þess var fundað með Eiði Thoroddsen rykbindingu vegarinn í gegnum byggðina á Látrum sem dugði aðeins í nokkra daga.

Skráðir félagar eru 136 sem er óbreytt félagatala frá fyrra ári.

Hlutverk Bjargtanga er orðað svo í lögum félagsins:
„Tilgangur félagsins er að gæta sameiginlegra hagsmuna og réttinda félagsmanna
varðandi eignir á Hvallátrum, og marka stefnu um vernd og vörslu lands, náttúru, minja og nytja
á Hvallátrum og Látrabjargi.“


Nauðsynlegt er að árétta, að stjórn félagsins fer ekki með umboð fyrir félagsmenn, heldur er aðeins vettvangur, þar sem afstaða þeirra til málefna getur þróast við skoðanaskipti og þar sem upplýsingar um viðhorf þorra þeirra getur verið að finna. Ákvarðanir á fundum félagsins eru ekki bindandi fyrir félaga og landeigendur heldur aðeins fyrir stjórn félagsins.

Verkefni stjórnar beindist að eftirfarandi, sem að stærstum hluta hafa verið í höndum Gísla Más Gíslasonar formanns.
  1. Lagning vegar framhjá byggðinni á Hvallátrum fyrir ofan Höfða, Hnjúka og suður fyrir Helguþúfu niður í Fit.
    Gísli Már Gíslason hittir Hrein Haraldsson vegamálastjóra reglulega og minnir á veg utan byggðar á Látrum, en hann segir fé verði ekki fáanlegt í bráð.

  2. Viðræður við Breiðuvíkurbónda um sumarbeit og smölun.
    Formanni og Vali Helgasyni var falið að ræða við Keran St. Ólafsson um sumarbeit, smölun og umgengni í landi Látra. Valur hefur rætt við Keran og miðar viðræðum vel áfram.

  3. Mörkun stefnu um friðlýsingu á Látrabjargi.
    Látrabjarg er á náttúruverndaráætlun ríkisstjórnarinnar sem vill stofna friðland vestan Kleifarheiðar. Engar formlegar viðræður hafa átt sér stað, en Umhverfisstofnun hefur óskað eftir því að stjórn Bjargtanga verði kynnt málið. Var skýrt frá tölvusendingum formanns og starfsmanna Umhverfisstofnunar, þar sem minnt var á fyrri samskipti. Skipulag fyrir Vesturbyggð hefur verið staðfest og fellur Látrabjarg undir svokallaða hverfisvernd. Hér er ekki um að ræða friðlýsingu samkvæmt náttúruverndarlögum, sem er á valdsviði umhverfisráðherra, en Látrabjarg er á Náttúruminjaskrá og sem væntanlegur þjóðgarður á náttúruverndaráætlun 2008 til 2012 sem Alþingi samþykkti. Ekki eru dæmi þess að friðlýsing hafi verið gerð í andstöðu við landeigendur.

  4. Styrkur frá Ferðamálastofu.
    Formaður sótti um fé til skiltagerðar og merkinga í landi Látra og Látrabjargi og fékk félagið Bjargtangar 1,1 milljón króna í styrk til gerðar deiliskipulags og merkinga.

  5. Ferðaþjónusta.
    Umfar, samtök sem skipuleggja gönguferðir í Vesturbyggð skrifaði félaginu bréf 26. janúar 2010 og óskaði eftir samþykki félagins hvort heimiluð væri „umferð gangandi ferðafólks í skipulögum ferðum um Látrabjarg og nágrenni“ og jafnframt tekið fram að “starfsfólk Umfars muni fara að umgengisreglum er landeigendur setja&bdrquo;. Fallist var á þetta að hálfu félagsins, en starfsmaður Umfars hefur leyfi Siglingastofnunar og vitavarðar til aðstöðu í vitanum yfir daginn.

  6. Ferðamannaaðstaða á Brunnum.
    Eftir að skilti var sett upp á hreinlætisaðstöðuna á Brunnum, þar sem fólk er beðið um að ganga vel um hefur umgengni stórbatnað. Ferðafólk hefur ekki verið að flytja grjót úr hleðslum eða skilja eftir sig drasl. Sett hefur verið upp nýtt salerni og gengið frá frárennsli rotþróar á Burnnum og var það gert í vikunni 10.-12.maí.

  7. Friðlýstar minjar.
    Nokkrar friðlýstar fornminjar er að finna í landi Hvallátra og hafa sumar þeirra verið merktar með litlum skiltum á sverum hælum, flest merkin eru snjáð eða máð, sums staðar eru hælar brotnir, ljóst er, að þessi merki eru vanrækt. Ákveðið hefur verið að ráðast í að endurbyggja Nesbúð, norður á Látranesi og sér Fornleifavernd um það.

  8. Sjávarágangur á Brunnum
    Sigurþór Þórisson á Hvalskeri lauk við gerð sjóvarnargarðs á Brunnum á síðastliðnu sumri. Varnargarðurinn á Brunnum, myndir frá 15. maí 2010.

  9. Viðhald heimasíðu.
    Þórður Kristjánsson sá um heimasíðu félagsins. Slóðin er: www.bjargtangar.net