01.08.2009
Um pítsusölu á Bjargtöngum
Á aðalfundi Bjargtanga 21. maí sl. var samþykkt eftirfarandi ályktun vegna fréttar um fyrirhugaða veitingasölu í Bjargtangavita á vegum
Listahátiðar:
Aðalfundur Bjargtanga, félags landeigenda á Hvallátrum, haldinn 21. maí 2009 samþykkir
eftirfarandi ályktun og felur stjórn félagsins að koma henni á framfæri við bæjarstjórn Vesturbyggðar:
Mótmælt er að heimiluð hefur verið veitingasala á Bjargtöngum án leyfis og nokkurs samráðs
við landeigendur.Það er grundvallaratriði að áður en heimiluð er hvers konar starfsemi sé
haft samráð og leitað leyfis þeirra sem landið eiga.
Í framhaldinu sendi Gísli Már Gíslason, formaður félagsins, bréf til Vesturbyggðar og Listahátíðar sem innihéldu ályktun aðalfundarins.
Svar barst frá Vesturbyggð og var veitingasölunni hætt og kamrar fjarlægðir í framhaldinu.
Bréf Vesturbyggðar má lesa hér.
01.07.2009
Fundargerð aðalfundar 2009
Aðalfundur Bjargtanga var haldinn þann 21. maí sl.
Fundargerð aðalfundarins má finna hér.
20.05.2008
Fundargerð aðalfundar 2008
Aðalfundur Bjargtanga var haldinn þann 17. maí sl.
Fundargerð aðalfundarins má finna hér.
23.10.2007
Verkaskipting stjórnar
Stjórn Bjargtanga var kjörin á aðalfundi 5. maí 2007.
| Gísli Már Gíslason | Heimabæ |
| Marías Sveinsson | Heimabæ |
| Kristinn Guðmundsson | Húsabæ |
| Hrafnkell Þórðarson | Húsabæ |
| Hafliði Árnason | Miðbæ |
| Sólveig Erlendsdóttir | Miðbæ |
|
| Varamenn: |
| Ragna Þórðardóttir | Húsabæ |
| Ingólfur Helgason | Heimabæ |
| Erlendur Kristjánsson | Miðbæ |
| |
Stjórnin hefu skipt með sér verkum:
Gísli er formaður, Ragna varaformaður, Sólveig gjaldkeri og Hrafnkell ritari stjórnar.
9.10.2007
Fréttir af vegamálum og landbroti
Gísli Már Gíslason hefur verið í sambandi við Magnús V. Jóhannsson umdæmisstjóra Vegagerðar ríkisins í Borgarnesi
meira...
2.10.2007
Fundargerð aðalfundar 2007
Aðalfundur Bjargtanga var haldinn þann 5. maí sl.
Fundargerð aðalfundarins má finna hér.
22.4.2007
Aðalfundur Bjargtanga 2007
Aðalfundur félagsins árið 2007 er boðaður laugardaginn 5. maí í húsakynnum Fjöltækniskóla Íslands í Sjómannaskólanum við
Háteigsveg og hefst kl.: 14:00.
meira...
11.6.2006
Vígsla minnisvarðans flutt til 2. júlí 2006
Minnisvarði um sóknarbörn Breiðavíkurkirkju afhjúpaður á grunni gömlu sóknarkirkjunnar
Sagt var frá því á aðalfundi félagsins 6. maí sl. að af átthagamót Látramanna 1990 varð tekjuafgangur, sem hefur verið ávaxtaður í sjóði. Vörslumenn sjóðsins hafa nú látið gera minnisvarða
sem setja á upp á grunni gömlu sóknarkirkju Látramanna í Breiðavík.
Sú breyting hefur orðið, að dagsetningin verður 2. júlí.
Messað verður í Breiðavíkurkirkju þann dag klukkan 14:00. Eftir messu verður farið í kirkjugarðinn og steinninn afhjúpaður við hátíðlega athöfn. Gestum gefst kostur á á hittast og drekka saman
kaffi í veitingasal gistiheimilisins í Breiðavík eftir afhjúpunina.
22.5.2006
Fundargerð aðalfundar 2006
Aðalfundur Bjargtanga var haldinn þann 6. maí sl.
Fundargerð aðalfundarins má finna hér.
4.5.2006
Skýrsla stjórnar 2006
Skýrsla stjórnar Bjargtanga fyrir fyrsta starfsárið er tilbúin.
Stjórnin gerir grein fyrir henni á aðalfundinum laugardaginn 6. maí.
Hér má lesa skýrsluna.
12.4.2006
Aðalfundur Bjargtanga 2006
Aðalfundur félagsins árið 2006 er boðaður laugardaginn 6. maí í húsakynnum Fjöltækniskóla Íslands í Sjómannaskólanum við
Háteigsveg og hefst kl.: 14:00.
meira...
3.4.2006
Vesturbyggð vill 2,5 milljóna kamar á Bjargtanga
Vesturbyggð sótti um þarseinustu áramót um styrk til Ferðamálaráðs til byggingar salernisaðstöðu.
Það vakti athygli þeirra sem stóðu í stofnun átthagafélagsins Bjargtanga að umsóknin fékk jákvæða afgreiðslu,
m.a. vegna þess að í henni er því haldið fram að umsóknin sé gerð í samvinnu við landeigendur.
Undirbúningshópur - og síðar stjórn Bjargtanga hefur staðið í samskiptum við Vesturbyggð og Ferðamálaráð
til þess að afla upplýsinga, leiðrétta misskilning og árétta stöðu og rétt félagsins í þessu máli.
meira...
16.4.2005
Félag land- og sumarhúsaeigenda á Hvallátrum stofnað
84 á stofnfundi Bjargtanga
Landeigendafélagið Bjargtangar hefur nú loks verið stofnað.
Eftir nokkurra mánaða undirbúningsvinnu og tillögugerð að lögum félagsins, var stofnfundur haldinn í dag.
Til fundarins höfðu verið boðaðir um 140 manns sem undirbúningshópurinn taldi að teldust til Látramanna.
Ekki sáu sér allir fært að mæta, en 84 mættu á fundinn, rituðu nafn sitt í gestabók og greiddu fyrir kaffisopann
sem til reiðu var á fundinum. Þessir 84 teljast því stofnfélagar Bjargtanga.
Eftir skarpar umræður, voru lög félagsins samþykkt, og
stjórn þess kosin.